18 ára ábyrgð

Bæklingur fyrir foreldra nýnema í framhaldsskóla. 


Í bæklingnum er farið yfir mikilvægi þess að foreldrar séu enn þá virkir þátttakendur í lífi barns síns þannig að þau slaki á taumnum en sleppi ekki þó barnið sé komið í framhaldsskóla.


Við teljum mikilvægt að við vinnum saman að því að upplýsa foreldra á jákvæðan hátt og fá þá með okkur í að móta öruggt umhverfi þar sem ungmennum líður vel.


Hér til hliðar má finna bæklinginn á 8 tungumálum.